Allt eldi fari í lokuð kerfi

„Fiskeldi í opnum sjókvíum við strendur landsins með frjóum fiski af norskum uppruna eru hamfarir gegn náttúrunni og íslenskum hagsmunum.“ Þetta eru lokaorð harðorðrar yfirlýsingar sem Veiðifélag Breiðdæla samþykkti á aðalfundi sínum fyrir nokkrum dögum.
Aðalfundurinn var haldinn í Eyjum, veiðihúsinu við Breiðdalsá. Mótmælir aðalfundurinn harðlega laxeldi í opnum sjókvíum við strendur landsins og skorar á stjórnvöld að grípa nú þegar til viðeigandi aðgerða til heilla fyrir framtíð þjóðar, eins og það er orðað í ályktuninni sem ber einfaldlega yfirskriftina „Ályktun um fiskeldi“.
Tonnið á 2,6 milljónir í Noregi
„Í Noregi fór nýlega fram uppboð á laxeldisleyfum. Þar seldist leyfið fyrir eitt laxeldistonn á tæpar 2,6 milljónir króna sem renna til ríkis og viðkomandi sveitarfélags. Samkvæmt þessu kostar leyfi fyrir 6.000 tonna laxeldi fyrir Laxa ehf. í Reyðarfirði 15,4 milljarða í Noregi og sama á við um Fiskeldi Austfjarða ehf. í Berufirði. Hér á landi eru sömu leyfi nánast ókeypis. Þessar staðreyndir sýna svart á hvítu hvernig Íslendingar láta norska eldisrisa hafa sig að féþúfu og ætla að fórna villtum laxastofnum til viðbótar sem þykja þó einstæðir og á heimsvísu. Hvað verður um orðspor Íslendinga á alþjóðavettvangi í umhverfsmálum í ljósi slíkra tíðinda?“
Draga lögmætið í efa
Í sömu ályktun er lögmæti fiskeldis í Berufirði dregið í efa. Um þetta segir í ályktuninni: „Við athugun hefur komið í ljós, að eldisiðjan í Berufirði á vegum Fiskeldis Austfjarða ehf. hefur ekki enn öðlast stöðvarskírteini og starfar í skjóli undanþágu skv. gömlum reglum, m.a. um búnað og umgjörð. Þá er hvergi getið um heimildir í leyfum fyrir sömu eldisiðju til þess að nýta frjóan fisk af erlendum uppruna til eldisins eins og skylt er skv. lögum og reglum. Sömuleiðis finnast hvergi í útgefnum leyfum fyrir laxeldisiðjuna í Berufirði heimildir til að losa fosfór í sjóinn sem er uppistaðan í spillandi úrgangi frá eldinu. Þá hefur sama eldisiðja aldrei farið í umhverfismat. Af þessu má ljóst vera að eldisiðjan í Berufirði er lögleysa, og trúverðugleiki stofnana, sem ábyrgð bera á útgáfu leyfa og eftirliti, er í molum og geta því tæpast talist marktækar.“
Allt eldi verði í lokuðum kerfum
Veiðifélag Breiðdæla gætir hagsmuna Breiðdalsár, sem er besta laxveiðiá á Austurlandi ef undan eru skyldar árnar í Vopnafirði. Nábýlið við sjókvíarnar bæði norðan og sunnan Breiðdalsvíkur, þar sem Breiðdalsá fellur til sjávar er mikil ógn í huga þeirra sem sóttu aðalfundinn og samþykktu þessa ályktun. Krefst fundurinn þess að allt eldi fari fram í lokuðum kerfum.
„Nú hafa verið gefin út leyfi fyrir 12 þúsund tonnum til eldis af laxi og regnbogasilungi í opnum sjókvíum á Austfjörðum. En sótt hefur verið um viðbótarleyfi fyrir 54 þúsund tonna eldi í austfirskum fjörðum. Hámark eldis í opnum sjókvíum samkvæmt útgefnu áhættumati Hafrannsóknastofnunar fyrir Austfirði eru 21 þúsund tonn. Við vörum við þessari ógn gagnvart lífríkinu og krefjumst, að allt eldi fari fram í lokuðum kerfum og bannað verði að nota frjóan fisk til eldis af útlenskum uppruna.“ Texti Mbl.is – Mynd frá Berufirði / By Charles F. Pelkey [CC BY-SA 4.0 , from Wikimedia Commons
Sendu ábendingu um frétt
eða myndir á https://www.mbl.is/frettir/veidi/2018/07/02/allt_eldi_fari_i_lokud_kerfi/
Tengdar greinar
Lánareiknir – Skuldaleiðrétting húsnæðislána
Hér er vefsíða, þar sem skoða má hverra leiðréttinga má vænta til lækkunnar á verðtryggðu húsnæðislánunum. Sjá: Lánareiknir.
Krónan hækkar verð á ávöxtum um 10 prósent
Það fyrsta sem við gerum þegar við heimsækjum Krónuna á Reyðarfirði er að velja okkur ávexti úr ávaxtaborði. Í síðustu
Volvo Penta AQD40A
Hér er myndband af eldri gerð Volvo Penta Undirgerð: AQD40A – Framleiðsluár: 1977 – 1985 – 6 cyl. Hestöfl 91-124