Hver berst fyrir kjörum öryrkja og eldri borgara?

by Arndís / Gunnar | 01/05/2018 16:55

[1]Eftir að hafa hlustað á innblásnar 1. maí ræður verkalýðsleiðtoganna það sem af er degi og fyrirhugaðar aðgerðir þeirra ef ekki verði komið til móts við félögin í komandi kjaraviðræðum, þá verður mér spurn. Hver gætir kjara öryrkja og verkafólks sem er 67 ára og eldra? Þessir hópar virðast ekki eiga sér málsvara innan verkalýðsfélaganna. -Þó er þetta fólkið sem byggði upp þessi sömu félög með aðildargjöldum og baráttu sinni um áratuga skeið. Hvað veldur að þessum hópum er hent fyrir róða þegar að kjarasamningum kemur?

Ágætu skeleggu forystumenn og verkalýðsleiðtogar: Sólveig Anna Jónsdóttir, Ragnar Þór Ingólfsson og Vilhjálmur Birgisson. Ég skora á ykkur að standa vörð og berjast fyrir kjörum öryrkja og eldri borgara þessa lands. G.Geir

Endnotes:
  1. [Image]: https://aust.is/wp-content/uploads/2018/05/156160_3704360926164_1189727966_3640028_1953258876_n.jpg

Source URL: https://aust.is/hver-berst-fyrir-kjorum-oryrkja-og-eldri-borgara/