Umhverfisverðlaun Fjarðabyggðar 2017 afhent

Umhverfisverðlaun Fjarðabyggðar 2017 afhent

“Umhverfisverðlaun Fjarðabyggðar voru veitt í annað sinn á Stríðsárasafninu á Reyðarfirði í dag. Viðurkenningar voru veittar í þremur flokkum; fyrir snyrtilegustu lóð við íbúðarhús, snyrtilegasta umhverfi íbúðarhúss í dreifðri byggð og snyrtilegustu fyrirtækjalóð. Óskað var eftir tilnefningum frá íbúum í Fjarðabyggð og bárust alls 11 tilnefningar á öllum flokkum. – Tilnefningarnar fóru svo til dómnefndar sem vann úr þeim, fór og skoðaði alla þá garða og lóðir sem tilnefndar voru og gaf álit sitt. Dómnefndina skipuðu Dagbjört Óskarsdóttir, garðyrkjufræðingur og blómaskreytir Reykjavík og Helga Björk Einarsdóttir, garðyrkjufræðingur og starfsmaður Fjarðabyggðar

Viðurkenningu fyrir snyrtilegustu lóð í þéttbýli hlutu íbúarnir í Hæðargerði 25 á Reyðarfirði, þau Jóna Margeirsdóttir og Ari Bergsveinn Guðmundsson. Í umsögn dómnefndar segir: „Lóðin er afar snyrtileg og stílhrein, hellulögn og garður mynda fallega heild. Garðurinn er vel snyrtur og plöntuvalið er til fyrirmyndar með tilliti til árstíða og vaxtarlags. Garðurinn er afar fagmannlega unninn og er með fallegan og heildstæðan stíl„

Hæðargerði 23

Snyrtilegasta lóðin í dreifbýli var að þessu sinni hjá þeim Dagbjörtu Briem Gísladóttur og Sigurði Baldurssyni á Sléttu í Reyðarfirði. Í umsögn dómnefndar segir: “Umhverfi bæjar er mjög snyrtilegt og nánast hvergi rusl að sjá né annan óþarfa, ekki einu sinni utan við gripahúsin. Heyrúllum raðað afar snyrtilega upp. Lóðin hefur góða heildar ásýnd. Slétta er afar snyrtilegur bóndabær og það gefur skemmtilegan blæ að sjá hænurnar frjálsar við bæinn.„

Slétta

Viðurkenningu fyrir snyrtilegustu lóð fyrirtækis eða stofnunar kom í hlut Steinasafns Petru á Stöðvarfirði. Umsögn dómnefndar um lóð Steinasafnsins er svo hljóðandi: “Hér gefur að líta mjög metnaðarfulla rekstraraðila sem hafa náð að gera heildarásýnd svæðisins afar fagra. Einnig er hugsað vel út í hvert einasta smáatriði í garðinum, blóm, steinar sem allt annað er vel ígrundað. Garðurinn er einstaklega blómlegur og plöntuvalið er fjölbreytt. Steinasafn Petru er velhirt blómaparadís“

Steinasafn Petru, Stöðvarfirði

Handhafar umhverfisverðlauna Fjarðabyggðar 2017 ásamt bæjarstjóra, umhverfisstjóra og varafomanni ESU. (f.v) Ragnar Sigurðsson, varaformaður ESU, Sigurður Baldursson og Dagbjört Briem Gísladóttir, Sléttu, Ari B. Guðmundsson og Jóna Björg Margeirsdóttir, Hæðargerði 23, Petra Sveinsdóttir frá Steinasafni Petru, Páll Björgvin Guðmundsson bæjarstjóri og Anna Berg Samúelsdóttir umhverfisstjóri.

Fjarðabyggð óskar handhöfum umhverfisviðurkenningana innilega til hamingju.” Sjá vefsvæði Fjarðabyggðar – Myndir og texti af fjölmiðlatorgi Fjarðabyggðar


Tengdar greinar

Lögreglan á Austurlandi varar við mönnum á ferli

Lögreglan á Austurlandi hefur enn ekki haft upp á aðilum sem virðast hafa verið á ferð í Neskaupstað og Eskifirði

Eru flest allar gjaldaskrár Fjarðabyggðar að hækka?

Nú, á versta tíma, þegar almennir launþegar hafa mátt sætta sig við 2.8% launahækkanir frá því í síðustu kjarasamningum, kemur

Ásmundur Friðriksson – Hvort er betra mengun eða mengun?

“Ásmundur Friðriksson vill að sóðar verði sektaðir. Hann hefur, ásamt fimm öðrum þingmönnum, lagt fram lagafrumvarp þess efnis: „Rusl sem

Engar athugasemdir

Skrifa athugasemd
Engar athugasemdir! Þú getur verið fyrst/ur til skrifa við þessa færslu!

Skrifa athugasemd

This site uses Akismet to reduce spam. Learn how your comment data is processed.