VÍS lokar útibúi sínu í Fjarðabyggð – Bæjarráð bókar hörð mótmæli

“Á fundi bæjarráðs Fjarðabyggðar 24.9.2018 mótmælti bæjarráð harðlega lokun á útibúi Vátryggingafélags Íslands í Fjarðabyggð.
Bæjarráð Fjarðabyggðar mótmælir harðlega lokun útibús VÍS í Fjarðabyggð sem boðuð hefur verið. VÍS hefur á undanförnum árum dregið verulega úr sinni þjónustu í sveitarfélaginu og lokað útibúum í hverfum þess. Með lokun þessari mun því ekkert útibú VÍS vera starfandi í Fjarðabyggð. Er það afar sérstakt þar sem Fjarðabyggð er fjölmennasta sveitarfélag á Austurlandi og er sveitarfélagið með allar sínar tryggingar hjá VÍS. Þann 1.janúar 2019 eru samningar sveitarfélagsins um tryggingarþjónustu við VÍS lausir og mun bæjarráð ekki framlengja þá í ljósi skerðingar á þjónustu VÍS. Þá mun bæjarráð horfa til þjónustu tryggingafélaganna í sveitarfélaganna í komandi viðskiptum sínum við þau.”
Tengdar greinar
Veðursæld í Fáskrúðsfirði
Það lék við okkur veðrið í dag. Sólin sleikti fjallatoppa, logn og 6 stiga frost framan af degi.
Nú líður senn að kosningum
Í dag eru ríflega 3 mánuðir til sveitastjórnakosninga, en þær fara fram laugardaginn 26. maí 2018 – Af því tilefni
Vetrarsólstöður í dag
Bjart yfir og sól í lofti. Fáskrúðsfirðingar mega þó bíða til 28. janúar, en þá skín sólin niður í fjörðinn